Friday, January 11, 2008

Íslenski Fótbolti

Rodney Perry og Uche Asika fara utan til að endurnýja dvalarleyfi
- Missa af leikjum með Völsungi

Rodney Perry.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Rodney Perry og Uche Asika framherjar Völsungs munu fara af landi brott 3.júlí næstkomandi þar sem að þeir þurfa að fá endurnýjun á dvalarleyfi en þeir munu koma aftur til Húsvíkinga þegar þeir hafa lokið við það.

,,Þeir fara til síns heima og koma aftur vonandi sem fyrst. Það er ekki vitað hvað þetta tekur langan tíma en þeir koma aftur við fyrsta tækifæri," sagði Guðbjartur Ellert Jónsson formaður meistaraflokksráðs hjá Völsungi.

Rodney og Uche komu til Völsungs fyrir tímabilið eftir að hafa leikið með Víkingi og Þrótti í fyrra. Þeir munu leika með Völsungi gegn ÍH á laugardaginn áður en þeir halda utan.

Rodney hefur leikið fjóra leiki í annarri deildinni í sumar en Uche hefur skorað þrjú mörk í fimm leikjum.

No comments:

Enhancing Your Free-Time